Saga Seiglunnar
Á stefnumótunarfundi stjórnar Alzheimersamtakanna haustið 2018 var sett á oddinn það verkefni að koma yfir þau „Alzheimerhúsi“ þar sem væri í senn boðið upp á þjónustu við fólk á fyrstu stigum sjúkdómsins og rekin núverandi starfsemi samtakanna. Það hófst með aðstoð sterkra bakhjarla Alzheimersamtakana, Oddfellowum á Íslandi.
Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowreglunnar
Skemmst er frá að segja að samtökin komust í samband við stjórn Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowreglunnar á Íslandi sem þá var að skoða verkefni sem mögulega væri hægt að styrkja á þann höfðinglega hátt sem þeim einum er lagið. Á sama tíma hafði komið upp sú hugmynd og hún viðruð við stjórnvöld í Hafnarfirði hvort hluti af húsnæðinu í gamla St. Jósepsspítala í Hafnarfirði kæmi til greina.
Seiglan Þjónustumiðstöð
Þremur árum síðar voru 320 m2 á þriðju hæð hússins afhentir Alzheimersamtökunum til afnota en verðmæti framlags Oddfellowreglunnar í formi framkvæmda var metið til fyrirframgreiddrar leigu í 15 ár fyrir samtökin.
Fyrir þetta verða Alzheimersamtökin Oddfellowum á Íslandi ævinlega þakklát.

