Hvað er heilabilun?
Heilabilun er samkvæmt skilgreiningu alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar: Regnhlífarhugtak yfir um 200 sjúkdóma sem hafa áhrif á minni og aðra vitsmunalega getu sem valda skerðingu á getu einstaklinga til að sinna daglegum verkefnum lífsins.
Heilabilun er ekki eðlileg öldrun og er ekki öldrunarsjúkdómur en líkurnar á heilabilun aukast eftir því sem við eldumst líkt og með marga aðra sjúkdóma.
Einkenni geta verið misjöfn eftir einstaklingum en hér eru nokkur algeng einkenni:
- Gleymni sem nýlega hefur orðið vart við.
- Hlutirnir eru ekki settir á sinn stað.
- Erfiðleikar við skipulag og flóknari athafnir daglegs lífs.
- Erfiðleikar við að glöggva sig á tíma og rúmi, rata jafnvel ekki í áður velþekktu umhverfi.
- Óvenju líflegir draumar og sjónrænar ofskynjanir.
- Versnandi samhæfing og jafnvægistruflanir.
- Erfiðleikar við tjáningu og málskilning.
- Minnkandi félagsfærni.
- Erfiðleikar við venjubundnar athafnir s.s. innkaup, matargerð o.þ.h.
- Persónuleikabreytingar.
- Minnkandi frumkvæði.
Algengasta orsök heilabilunar er Alzheimer, hins vegar eru til allt að 200 mismunandi sjúkdómar sem geta valdið heilabilun. Framgangur sjúkdómanna getur staðið yfir frá nokkrum árum til nokkurra áratuga.
Meðferðamöguleikarnir velta á því hvaða sjúkdómur það er sem er orsök heilabilunarinnar. Ráðgjöf til þeirra sem greinast og aðstandenda ásamt hagnýtum stuðningi og aðstoð eru mikilvægustu þættir meðferðarinnar.
Læknar getað ávísað lyfjum sem draga tímabundið úr einkennum, m.a. vegna Alzheimersjúkdóms. Við æðabilun sem getur m.a. verið tilkomin vegna blóðtappa í heilanum, þá getur meðferðin gengið út á það að koma í veg fyrir myndun fleiri blóðtappa.
Veikist fólk af heilabilun fyrir 65 ára aldur telst það snemmkomin heilabilun (young onset dementia). Allar gerðir heilabilunarsjúkdóma geta komið fram fyrir 65 ára aldur; til dæmis alzheimer, lewy body heilabilun, æðabilun, framheilabilun, blönduð heilabilun, heilabilun vegna áfengisneyslu og heilabilun vegna höfuðáverka. Ástæða þess að snemmkomin heilabilun er skilgreind sem sérstök tegund heilabilunar er hve ólíkar þarfir sá hópur getur haft miðað við þá sem greinast seinna á ævinni. Yngra fólk er stundum fyrst greint með þunglyndi, kvíða eða streitueinkenni.
Seiglan er úrræði fyrir fólk sem komið er með greiningu á heilabilunarsjúkdómi sem er á stigi vægrar vitrænnar skerðingar. Yngra fólk sem enn er á vinnumarkaðnum eða er nýlega hætt að vinna eru í forgangi í þjónustu þar.
Hér er hlekkur á vefsíðu með upplýsingum um heilabilun settar fram á einfaldan hátt, t.d. fyrir börn