Fræðsla

Heilabilun

Fjármál og umboð

Fjármál og umboð

Hér má nálgast upptöku af mjög fróðlegu fræðsluerindi Þórdísar Bjarnadóttur hæstaréttarlögmanns um fjármál og heilabilun.

Mikilvægt er að gera fjárhagslegar ráðstafanir í tíma, eða á meðan einstaklingurinn hefur fullan skilning á því sem hugsanlega þarf að gera í framtíðinni. Þeir sem greinast með heilabilun geta útbúið umboð sem felur í sér að öðrum aðila er veitt heimild til þess að annast fjármál viðkomandi þegar hann getur það ekki lengur. Umboðið miðast við að viðkomandi sé nægilega heill heilsu til að taka svo afdrifaríka ákvörðun eins og að veita umboðið.

Ýmis einkenni sem fylgja heilabilunarsjúkdómum hafa áhrif á getu einstaklingsins til þess að sinna og taka ákvarðanir um fjármál sín og dvínar sú geta eftir því sem lengra líður á sjúkdómsferlið. Mikilvægt er að gera fjárhagslegar ráðstafanir í tíma, eða á meðan einstaklingurinn hefur fullan skilning á því sem hugsanlega þarf að gera í framtíðinni.

Hinn veiki þarf að velja einn af sínum nánustu til að taka við umboðinu fyrir hans hönd. Það getur verið einfalt þegar maki er til staðar en í mörgum tilfellum þarf að leita til til eins barns af mörgum eða til fjarlægari skyldmenna. Í slíkum tilfellum getur ákvörðunin um hver tekur við umboðinu leitt til deilna síðar. Þess vegna er mikilvægt að samkomulag sé innan fjölskyldu um val á umboðsmanni og hann láti fjölskyldu fylgjast með ákvörðunum og ráðstöfunum sem teljast meiri háttar. Æskilegt er að læknisvottorð og/eða umsögn læknis fylgi umboði.

Ef nota á umboðið við einhverja ákveðna gjörninga, til dæmis húsnæðissölu eða kaup, þarf að þinglýsa því og öðlast það þá gildi. Umboðið þarf að skrá á löggiltan skjalapappír, votta og undirrita.  Rétt er að árétta að umboð af þessu tagi tekur ekki til erfðagerninga. Æskilegast er að fá lögmann til að ganga frá umboði. 

Heimilisuppbót

Maki sem býr einn og er lífeyrisþegi getur sótt um heimilisuppbót.

Nánar

Dvalarkostnaður

Dvöl lífeyrisþega á stofnun getur haft áhrif á greiðslur frá TR.

Nánar

Framlenging Lífeyrisgreiðslna

Ef sýnt er fram á háa greiðslubyrði t.d. af húsnæði er hægt að sækja um framlengingu lífeyrisgreiðslna.

Nánar