Aðstandendur
Það er getur reynst erfitt að bregðast við nýjum og áður óþekktum aðstæðum þegar aðstandandi greinist með heilabilun.
Margvísleg vandamál og jafnvel fjárhagsáhyggjur blasa við. Er því ekki að undra að margir aðstandendur þjáist af streitueinkennum, t.d. þreytu, höfuðverk, meltingartruflunum, svefnvandamálum og jafnvel þunglyndi, reiði og kvíða.
Aðstandendur eru ekki alltaf meðvitaðir um samhengið á milli álagseinkenna og þeirra skyndilegu krafna sem gerðar eru til þeirra.
Stuðningshópar fyrir aðstandendur
NánarÁhrif á maka
Mestur þungi hvílir yfirleitt á maka einstaklings með heilabilun. Makar fólks með heilabilun upplifa breytingar á hjónalífinu og tilfinningum sínum til hins greinda.
Það er mikilvægt að horfast í augu við þessar tilfinningar og líta á þær sem eðlileg viðbrögð við miklu andlegu álagi.
Samskipti
Að verða aðstandandi fólks með heilabilun getur verið bæði krefjandi og erfitt. Það krefst fórnfýsi, þolinmæði og umhyggju.
Álag, þreyta og svefnleysi eykst hjá aðstandendum samtímis því að þeir þurfa að glíma við tilfinningalega þætti eins og sorg, sektarkennd og reiði.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að þessi hópur er í hættu með að þróa með sér kvíða og þunglyndi. Það er því mikilvægt að aðstandendur nýti sér þann stuðning sem er í boði eins og t.d. stuðningshópa og/eða sálfræðiþjónustu.
Þekktu þín mörk
- Einbeittu þér að því að leysa þau vandamál sem þú ræður við.
- Reyndu eins og mögulegt er að sætta þig við það sem þú ræður ekki við, eða getur ekki haft áhrif á.
- Ekki ímynda þér að þú ráðir við allt upp á eigin spýtur og ekki búast við að komast yfir allt sem þú gerðir áður.
- Reyndu að meta getu hins veika af raunsæi.
Sýndu skilning og væntumþykju
- Lærðu að njóta augnabliksins og mundu að færni og áhugi hins veika er orðinn takmarkaður.
- Ekki reiðast þó að hlutirnir gangi ekki eins og í sögu.
- Reyndu að tala rólega og sýndu hlýju og væntumþykju.
- Bæði aðstandandi og sá veiki hafa þörf fyrir snertingu og ást.
Hugsaðu um sjálfa/n þig
- Gerðu fjölskyldu og vinum ljósar þarfir þínar og þiggðu þá hjálp sem þér stendur til boða.
- Ef þér finnst að fjölskyldan og jafnvel aðrir gætu hjálpað meira reyndu þá að ræða við viðkomandi.
- Mundu að þú hefur rétt á þínum eigin áhugamálum.
- Frídagar eru þér nauðsynlegir.
- Ef þú hugsar ekki um sjálfa/n þig getur þú með tímanum, ekki annast þann veika.
- Reyndu að beita kímnigáfunni eins og hægt er.




