Sólblómaband
Isavia býður upp á þjónustu fyrir fólk með ósýnilegar fatlanir eða skerðingar eins og t.d. heilabilun og einhverfu. Fyrir fólk í þessum aðstæðum getur verið erfitt, flókið eða fyrirkvíðanlegt að fara í gegnum flugstöð. Fólki úr þeim hópi stendur til boða að fá sólblómaband til að bera um hálsinn á ferð sinni um Keflavíkurflugvöll. Starfsfólk í flugstöðinni er þannig upplýst um að farþegar sem bera bandið gætu þurft viðbótartíma, aukna þolinmæði, skilning og tillitssemi þegar það fer í gegn.
Hægt er að nálgast böndin á innritunarborðum afgreiðsluaðila í brottfararsal flugstöðvarinnar og á upplýsingaborði í komusal. Ekki er þörf á að panta sólblómabandið fyrir komu á flugvöllinn.
Tilgangur sólblómabandsins
Tilgangurinn er að hjálpa farþegum sem eru með ósýnilega fötlun eins og t.d. heilabilun, einhverfu eða lesblindu að fara í gegnum flugvöllinn á sem þægilegastan hátt.
