Seiglan

Um Seigluna

Fyrir hverja er Seiglan?

Fyrir hverja er Seiglan?

Seiglan er fyrir fólk sem komið er með greiningu á heilabilunarsjúkdómi sem er á stigi vægrar vitrænnar skerðingar og aðstandendum þeirra, frá greiningu og þar til þörf er á sérhæfðari þjónustu. Yngra fólk sem enn er á vinnumarkaðnum eða er nýlega hætt að vinna eru í forgangi í þjónustu hjá okkiur.

Markmið Seiglunnar er að hægja á framþróun sjúkdómsins með því bjóða upp á sérhæfða, einstaklingsmiðaða þjónustu þar sem aðstoð er veitt við að byggja upp og viðhalda vitrænni, líkamlegri og félagslegri getu og andlegri vellíðan. Þjónustuferlið okkar hefst með viðtali við iðjuþjálfa þar sem þörfin fyrir þjónustunni er metin, áhugasvið kannað og grunnur lagður af þjónustuáætlun sem er endurskoðuð reglulega. Iðjuþjálfi fylgir svo einstaklingum eftir á meðan á þjónustunni stendur..

Hverjir geta nýtt sér þjónustuna?

Þeir sem komnir eru með greiningu á heilabilunarsjúkdóm, eru á fyrstu stigum sjúkdómsins og eru sjálfstæðir með sínar daglegu athafnir. Í forgangi fyrir þjónustu hjá okkur eru yngri einstaklingar sem eru enn á vinnumarkaði eða eru ný hættir að vinna.

Aðstandendur þeirra sem greinst hafa með heilabilunarsjúkdóm geta sótt hluta af okkar þjónustu eftir aðstæðum.

Fólk kemur á eigin forsendum í þjónustuna og ekki þarf beiðni frá lækni, en greining á sjúkdómnum þarf að liggja fyrir.

Hvernig sæki ég um þjónustu Seiglunnar?

Þau sem eru í þjónustu hjá Minnismóttöku Landakots geta óskað eftir að starfsfólk þar sendi inn umsókn fyrir þeirra hönd.

Einnig er hægt að hafa samband við Seigluna með eftirfarandi hætti:

  • Senda tölvupóst á seiglan@alzheimer.is
  • Hringja í síma 520 1080 eða 520 1087

Þjónustuáætlun

Þjónustuáætlun okkar er einstaklingsmiðuð og er metin reglulega með tilliti fyrir þörf á þjónustu og útskrift. Hún hefur upphaf og endi og teljum við nauðsynlegt að þeir sem nýti sér þjónustu Seiglunnar útskrifist úr þjónustunni þegar sjúkdómurinn er kominn yfir á næstu stig og þörfin fyrir sérhæfðari þjónustu orðin meiri. Þegar líður að útskrift er gott að vera búin að sækja um í sérhæfða dagþjálfun svo ekki myndist bil á milli þjónustuúrræða

Ertu með spurningar varðandi starfsemina?

Endilega sendu okkur línu!