Seiglan

Þjónusta Seiglu...

Iðjuþjálfun

Iðjuþjálfun

Upphaf þjónustu hefst með viðtali við iðjuþjálfa, sem aðstoðar þig við að setja saman þjónustuáætlun sem hæfir þínu áhugasviði, færni og vilja. Viðtalið tekur um klukkustund og er þar farið yfir líkamlega, vitræna og félagslega færni ásamt því að áhugasvið er kannað. Skoðað er hvernig sjúkdómurinn hefur áhrif á líf þitt og þínar daglegu venjur, hlutverk og iðju. Áætlunin samanstendur af markmiðum einstaklingsins og þeim úrræðum sem í boði eru hverju sinni í Seiglunni. Þjónustuáætlunin er endurskoðuð í samráði við einstaklinginn eftir þörfum eða á amk 6 mánaða fresti svo þú sért að fá þá bestu mögulegu þjónustu frá okkur hverju sinni.

Harpa Björgvinsdóttir útskrifaðist með Bs gráðu í iðjuþjálfafræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2012. Hún starfaði hjá Hrafnistu í Hafnarfirði, fyrst sem iðjuþjálfi en síðar sem deildarstjóri iðjuþjálfunar frá útskrift en hóf störf hjá Alzheimersamtökunum árið 2021.

Harpa Björgvinsdóttir

Harpa Björgvinsdóttir

Iðjuþjálfi

520 1087

harpa@alzheimer.is

Þjónustuþegar Seiglunnar geta pantað viðtal við iðjuþjálfa í síma 520 1080 eða með því að senda póst á harpa@alzheimer.is.

Hugmyndafræði iðjuþjálfunar

Seiglan starfar eftir hugmyndafræði iðjuþjálfunar. Hugmyndafræði iðjuþjálfunarfagsins byggir á þeirri sýn að iðja sé öllu fólki nauðsynleg og frá örófi alda hafi líf manneskjunnar einkennst af þörf til að stunda iðju og taka þátt í samfélaginu. Rannsóknir hafa sýnt að ef fólk kemst í þær aðstæður að geta ekki sinnt þeirri iðju sem er því mikilvæg, þá hefur það neikvæð áhrif á heilsu þess og líðan.

Með því að skapa aðstæður fyrir einstaklinginn til að sinna iðju sinni og efla félagsleg tengsl eru auknar líkur á meiri jafnvægi í lífi einstaklingsins ásamt betri líðan.

Þjónustan okkar er einstaklingsmiðuð og valdeflandi og verður til á forsendum þeirra sem sækja þjónustuna. Sú þjónusta sem veitt er í Seiglunni tekur því mið af áhuga, getu, óskum og þörfum þjónustuþega okkar.