Samstarfsaðilar
Margt í starfi Alzheimersamtakanna væri ekki framkvæmanlegt nema með dyggum stuðningi fyrirtækja. Ýmis fyrirtæki hafa stutt okkur í gegnum árin með einum eða öðrum hætti. Við hvetjum alla sem hafa góðar hugmyndir eða vilja styrkja starfsemina í verki til að hafa samband. Við í Seiglunni erum heppin að hafa fengið góða samstarfsaðila með okkur í lið til að þjónustuþegar okkar eigi þess kost að fá fjölbreytta þjónustu.
Gym heilsa
Gym heilsa - Suðurbæjarlaug, Hringbraut 77, 220 Hafnarfirði. Sjá nánar á www.gymheilsa.is
Við erum í samstarfi við Gym heilsu í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Fyrirkomulagið hjá okkur er á þá leið að þjónustuþegar okkar kaupa sér kort með aðgangi í ræktina og í sund í þeim laugum sem Gymheilsa er til staðar. Þjálfari á vegum Gym heilsu útbýr æfingaáætlun fyrir viðkomandi sem er svo endurskoðuð eftir þörfum. Íþróttafræðingur á vegum Seiglunnar fylgir hópnum eftir og leiðbeinir þeim sem þurfa á að halda, ásamt því að aðlaga æfingaáætlunina ef á þarf að halda, s.s að útlit áætlunarinnar sé skýr og einföld, stilla tæki og rifja upp æfingar. Einnig leiðbeinum við með upphitun og teygjur á eftir æfingu.
Suðurbæjarlaug, Hringbraut 77, 220 Hafnarfirði. Sjá nánar á www.gymheilsa.is
Gym Heilsa
Suðurbæjarlaug, Hringbraut 77, 220 Hafnarfirði. Sjá nánar á www.gymheilsa.is
Golfklúbburinn Keilir – Steinholti 1, 220 Hafnarfirði. Sjá nánar á www.keilir.is
Golfklúbburinn Keilir hefur boðið okkur upp á aðstöðu til að æfa og spila golf. Einu sinni í viku er boðið upp á pútt í Hraunkoti ásamt því að við höfum aðgang að æfingaaðstöðu og getum farið út á völl að spila. Mæting er í Hraunkot þar sem við tökum á móti fólki en þeir sem vilja geta mætt í Seigluna áður og fengið fylgd yfir í Hraunkot.
Steinholti 1, 220 Hafnarfirði. Sjá nánar á www.keilir.is
Golfklúbburinn Keilir
Steinholti 1, 220 Hafnarfirði. Sjá nánar á www.keilir.is
Yogahúsið
Yogahúsið sér um Yoga námskeið hjá okkur. Námskeiðin sem eru 4 vikur í senn, fara fram í sal sem kallast Augað og er á 4.hæð í Lífsgæðasetrinu. Kennari yoga námskeiðsins aðlagar æfingarnar að okkar hópi svo allir geti tekið þátt. Mikil ánægja hefur verið með þessi námskeið.
Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41, 220 Hafnarfirði. Sjá nánar á www.facebook.com/yogahusid/
Yogahúsið
Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41, 220 Hafnarfirði. Sjá nánar á www.facebook.com/yogahusid/
Badmintonfélag Hafnarfjarðar
Einu sinni í viku er boðið upp á borðtennisæfingar í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Í upphafi tímanna eru gerðar æfingar sem þjálfa samhæfingu og jafnvægi og svo er spilað borðtennis eins og hverjum og einum listir.
Íþróttahúsið við Strandgötu, 220, Hafnarfjörður
Badmintonfélag Hafnarfjarðar
Íþróttahúsið við Strandgötu, 220, Hafnarfjörður
Vilt þú eða þitt fyrirtæki gerast samstarfsaðili Alzheimersamtakana?
Margt í starfi Alzheimersamtakanna væri ekki framkvæmanlegt nema með dyggum stuðningi fyrirtækja. Ýmis fyrirtæki hafa stutt okkur í gegnum árin með einum eða öðrum hætti. Við hvetjum alla sem hafa góðar hugmyndir eða vilja styrkja starfsemina í verki til að hafa samband!



