Markmið Seiglunnar
Seiglunni er ætlað að koma til móts við þarfir fólks með heilabilun á fyrstu stigum sjúkdómsins með einstaklingsbundnum áherslum og til að viðhalda líkamlegum, andlegum og félagslegum þáttum ásamt því að stuðla að sjálfstæði og aukinni virkni. Tilgangur með þjónustu okkar er meðal annars að hægja á framgangi sjúkdómsins. Þetta gerum við með því að veita fólki með heilabilun stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni. Virk þátttaka í daglegu lífi eykur lífsgæði og eflir sjálfsmynd sem stuðlar að sjálfstæði og aukinni virkni. Það að hreyfa sig, stunda hugræna þjálfun og vera virkur í félagslífinu, hefur jákvæð áhrif á starfsemi heilans, sem getur hægt á framgangi sjúkdómsins.
Hugmyndafræðin
Seiglan starfar eftir hugmyndafræði iðjuþjálfunar. Hugmyndafræði iðjuþjálfunarfagsins byggir á þeirri sýn að iðja sé öllu fólki nauðsynleg og frá örófi alda hafi líf manneskjunnar einkennst af þörf til að stunda iðju og taka þátt í samfélaginu. Rannsóknir hafa sýnt að ef fólk kemst í þær aðstæður að geta ekki sinnt þeirri iðju sem er því mikilvæg, þá hefur það neikvæð áhrif á heilsu þess og líðan.
Með því að skapa aðstæður fyrir einstaklinginn til að sinna iðju sinni og efla félagsleg tengsl eru auknar líkur á meiri jafnvægi í lífi einstaklingsins ásamt betri líðan.
Þjónustan okkar er einstaklingsmiðuð og valdeflandi og verður til á forsendum þeirra sem sækja þjónustuna. Sú þjónusta sem veitt er í Seiglunni tekur því mið af áhuga, getu, óskum og þörfum þjónustuþega okkar.
Hver eru fyrstu skrefin?
Í upphafi þjónustu er komið í viðtal við iðjuþjálfa og er í framhaldinu af því sett saman þjónustuáætlun í samvinnu milli þjónustuþega og iðjuþjálfa. Áætlunin samanstendur af markmiðum einstaklingsins og þeim úrræðum sem í boði eru hverju sinni í Seiglunni.
Ertu með spurningar?
Endilega hafðu samband ef frekari spurningar vakna. Til að hafa samband við sérstakan starfsmann er yfirlit tengiliðaupplýsinga starfsmanna Seiglunnar hér. Einnig erum við með algengar spurningar sem gætu svarið vangaveltum og spurningum sem þú gætir verið með.

