Hjúkrunarheimili
Tilgreint er í lögum að á hjúkrunarheimilum skuli vera deildir fyrir fólk með heilabilun og svo er á flestum stærri heimilum á landinu. Þessa kröfu er hægt að uppfylla að einhverju leyti á minni heimilum með því að hafa á einu landsvæði eina slíka deild fyrir öll heimilin. Þetta er meðal annars gert á Seyðisfirði fyrir Austfirðingafjórðung og þykir gefast vel faglega en gallinn er vegalengdin fyrir aðstandendur.
Þjónustan
Engar sérstakar kröfur um aðstæður eða þjónustu eru gerðar til slíkra deilda umfram það sem almennt gildir um hjúkrunardeildir. Eins og áður hefur komið fram eru nýrri einingar um margt líkar þjónustukjörnum en munurinn er sá að á hjúkrunarheimili býr fólk þar til yfir líkur.
Hvíldarinnlagnir
Flestir einstaklingar á hjúkrunarheimilum búa þar til langframa en einnig er nokkuð um hvíldarinnlagnir. Mörg hjúkrunarheimili bjóða upp á hvíldarinnlagnir og með þeim er verið að gefa aðstandendum andrými og hvíld og gefa fólki færi á að kynnast dvöl á hjúkrunarheimili. Það getur auðveldað ferlið þegar kemur að því að taka ákvörðun um að sækja um færni- og heilsumat.

