Algengar spurningar
Hvaða skilyrði þarf ég að uppfylla til að geta komið í þjónustu í Seigluna?
Til að koma í þjónustu í Seigluna þarftu að vera komin með greiningu á heilabilunarsjúkdóm og vera á fyrstu stigum sjúkdómsins sem kallast væg vitræn skerðing. Við óskum eftir því að fólk sé sjálfbjarga um athafnir daglegs lífs eins og með salernisferðir, að matast, klæða sig og þvo sér ásamt því að einstaklingurinn sé ekki farin að ráfa burt.
Hvernig sæki ég um þjónustu í Seiglunni?
Upphaf þjónustu hefst með kynningu á Seiglunni og viðtali við iðjuþjálfa. Hægt er að panta tíma í viðtal í síma 520 1087 eða með því að senda tölvupóst á seiglan@alzheimer.is
Ég greindist fyrir þremur árum, get ég sótt um þjónustuna?
Það eru engin tímamörk á því hversu langur tími er liðinn frá því að greining lá fyrir. Aðeins að fólk uppfylli þau skilyrði sem við setjum fyrir skráningu í þjónustu okkar sem er að fólk sé á fyrstu stigum heilabilunar, sé sjálfbjarga um athafnir daglegs lífs eins og með salernisferðir, að matast, klæða sig og þvo sér ásamt því að einstaklingurinn sé ekki farin að ráfa burt.
Þjónusta okkar er fyrsta þjónustuúrræðið eftir greiningu og þjónustum við því aðeins einstaklinga sem eru á fyrstu stigum heilabilunar þangað til þörf er orðin fyrir sérhæfðari þjónustu eins og t.d. dagþjálfun.
Ég er alveg ráðþrota. Hvert get ég leitað og fengið aðstoð?
Hægt er að hafa samband við ráðgjafa Alzheimersamtakanna í ráðgjafasímann 520 1082 eða panta tíma í ráðgjöf með því að senda tölvupóst á radgjafi@alzheimer.is
Einnig bjóðum við upp á viðtöl fyrir þjónustuþega Seiglunnar og nánustu aðstandendur þeirra við félagsráðgjafa og sálfræðing. Tímapantanir eru í síma 520 1080 og með því að senda tölvupóst á seiglan@alzheimer.is