Þjónstuferli Seiglunnar

Upphaf þjónustu hefst með grunnviðtali við iðjuþjálfa, sem aðstoðar þig við að setja saman þjónustuáætlun sem hæfir þínu áhugasviði, færni og vilja. Viðtalið tekur um klukkustund og er þar farið yfir líkamlega, vitræna og félagslega færni ásamt því að áhugasvið er kannað. Skoðað er hvernig sjúkdómurinn hefur áhrif á líf þitt og þínar daglegu venjur, hlutverk og iðju. Áætlunin samanstendur af markmiðum þínum og þeim úrræðum sem í boði eru hverju sinni í Seiglunni.

Þjónustuáætlunin er endurskoðuð í samráði við einstaklinginn eftir þörfum eða á amk þriggja mánaða fresti svo þú sért að fá þá bestu mögulegu þjónustu frá okkur hverju sinni.

Þjónustuáætlun Seiglunnar hefur upphaf og endi sem þýðir að þegar þjónustuþegi okkar þarf á að halda sérhæfðari þjónustu en við getum veitt, útskrifast hann frá Seiglunni. Við mælum eindregið með að þá sé til staðar umsókn í sérhæft úrræði eins og t.d. sérhæfða dagþjálfun svo ekki myndist bil í þjónustu viðkomandi.

Til þess að fá frekari upplýsingar um Seigluna er hægt að senda tölvupóst á  seiglan@alzheimer.is eða hringja í síma  520 1080.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?