Félagsleg og hugræn örvun
Góð félagsleg tengsl er ein af undirstöðunum í jafnvægi daglegs lífs og góðrar heilsu. Gott líkamlegt ástand eykur líkur á aukinni félagslegri virkni, góð félagsleg virkni felur í sér hugræna örvun og að viðhalda færni og getu eykur félagsleg tengsl. Við skort á félagslegri örvun og tengslum getum við fundið fyrir einmanaleika sem getur haft áhrif á lífsgæði okkar, heilsu og færni.
Í Seiglunni vinnum við út frá hugmyndafræði iðjuþjálfunar og er þar horft til þess að öllum er nauðsynlegt að stunda sína iðju og taka þátt í samfélaginu, burtséð frá menningu, aldri, líkamlegu og andlegu ástandi o.s.frv. Við leggjum því mikið úr því að fólk geti sinnt áhugamálum sínum og iðju. Við erum t.d. með góða aðstöðu sem við köllum Verk-smiðju sem er opin nokkrum sinnum í viku þar sem leiðbeinendur eru til aðstoðar ásamt því að við bjóðum upp á kennslu og leiðsögn í ýmsu handverki. Velkomið er að koma með sitt handverk að heiman og vinna að því í Verk-smiðjunni.
Myndlist - Tálgun
Myndlist – farið er í grunnatriði myndlistarinnar fyrir þá sem ekki hafa málað áður og fyrir þá sem eru vanari er leiðbeint út frá þeirra reynslu og áhuga. Velkomið er að koma með sitt eigið efni á námskeiðið. Við vinnum aðallega með akrílliti og vatnsmálningu. Skráning og nánari upplýsingar um myndlistina er í síma 520 1080 eða á seiglan@alzheimer.is
Tálgun - Unnið er með ferskan við með hníf, kennt að brýna og hirða bitverkfæri. Kennd er tækni sem er örugg, létt og afkastamikil og gerðir nytjahlutir eða gripir og bent á ýmsa aðra nýtingamöguleika. Skráning og nánari upplýsingar um tálgunina er í síma 520 1080 eða á seiglan@alzheimer.is
Karla- og konukaffi
Er einu sinni í viku í um það klukkustund í senn í aðskildum hópum. Rætt er um allt á milli himins og jarðar og má þar nefna meðal annars gamlar og skemmtilegar minningar úr æsku og okkar yngri árum, hlustað á skemmtilega tónlist og rætt um tónlistarmennina, listir og menning rædd ásamt ýmsu öðru. Skráning og nánari upplýsingar um karla- og konukaffi er í s. 520 1080 eða seiglan@alzheimer.is.
Söngur
Sönghópur – er í umsjón Önnu Siggu Helgadóttur sem er kórstjóri, söngkennari og söngkona. Farið er í raddæfingar, sungið eftir textum (eða eftir minni ef fólk treystir sér) og rætt saman um söng, textahöfunda og fleira. Reglulega söngstundir þar sem allir þjónustuþegar og nánustu aðstandendur þeirra eru velkomnir að taka þátt í söng og gleði. Söngstundirnar eru auglýstar á Facebook síðu Seiglunnar og undir viðburðir
Hitameðferð
Hitameðferð - fyrir hendur og axlir er í Kyrrðinni. Frábær tími til að slaka á, kyrra hugann og mýkja upp stífa vöðva. Skráning fer fram í síma 520 1080 eða með tölvupósti seiglan@alzheimer.is
Orðla
Orðla – Orðla (ordla.us) er orðaþraut sem gengur út á að giska á fimm stafa orð og höfum við sex tilraunir til þess að finna rétta orðið. Ef réttur stafur er á réttum staf verður hann grænn, ef réttur stafur er í orðinu sem giskað er á en hann er á röngum stað verður hann gulur og ef stafirnir eiga ekki við orðið verða þeir gráir og þá er óþarfi að nota þá aftur í ágiskun. Farið er í Orðlu alla virka daga. Nýtt orð kemur daglega.
Listir, hugarefling og vellíðan; Hittumst á safninu
Dagskráin Listir, hugarefli og vellíðan: Hittumst á safninu hófst árið 2015 í samvinnu Halldóru Arnardóttur listfræðings og Minnismóttökunnar. Söfnin sem eru heimsótt eru Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Þjóðminjasafn Íslands og Borgarsögusafn Reykjavíkur og eigum við boð á eitt af þessum söfnum einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina og eru þær heimsóknir auglýstar sérstaklega. Um er að ræða skipulagðar heimsóknir fyrir fólk sem þjáist af heilabilunarsjúkdómum. Í heimsóknunum er skoðuð myndlist og menningartengdir hlutir út frá ákveðnu viðfangsefni hverju sinni. Allt til þess að örva félagsleg samskipti og auka lífsgæði þátttakendanna.
Söfn í dag hafa mörg hlutverk. Þau miðla ekki aðeins þekkingu og varðveita verðmæti þjóðar heldur eru þau líka vettvangur félagslegra tengsla og samskipta. Nýta má listir og önnur menningarverðmæti í söfnum til að auka lífsgæði fólks með því að bjóða þeim upp á heimsóknir í sérsniðnum dagskrám. Með hjálp lista og menningartengdra gripa má að einhverju leyti endurheimta sjálfsmeðvitundina. Myndlist og íslenskur menningararfur geta tekið þátt í að virkja hugmyndaflugið, tilfinningaminnið og getuna til að eiga í félagslegum samskiptum – vinna með núvitundina. Talmál er örvað og minningar endurvaktar í gegnum myndverk og aðra sýningargripi. Sendur er út tölvupóstur á þjónustuþega með tímasetningu og á hvaða safn er farið ca viku fyrir heimsókn á safn. Skráning fer fram í síma 520 1080 eða með tölvupósti seiglan@alzheimer.is
Lífssaga
Lífssagan er góð til að fylla inn helstu þætti hvað varðar venjur, áhugamál og annað sem skiptir máli fyrir hinn veika m.a. fyrir umönnunaraðila í framtíðinni en einnig til að varðveita minningar og mikilvægar upplýsingar sem vilja gleymast með tímanum. Hægt er að fá aðstoð við að fylla út lífssöguna í Seiglunni og eru aðstandendur velkomnir með og getur verið nauðsynlegt að fá upplýsingar frá þeim einnig. Unnin er svokölluð orðasúpa úr þeim upplýsingum sem koma fram í lífssögunni eftir að útfyllingu er lokið sem hægt er að prenta út og ramma inn. Með orðasúpunni eru komnar sjáanlegar upplýsingar um lífssögu einstaklingsins sem er hægt að nota t.d. í umræður og upprifjun á skemmtilegum stundum í lífi þess veika. Skráning og nánari upplýsingar eru í síma 520 1080 eða með tölvupósti seiglan@alzheimer.is
Hugræn þjálfun og skynörvun
Það er margt sem við gerum daglega sem flokka má undir hugræna örvun/þjálfun og skynörvun. Að leysa krossgátur, sudoku, púsla, leita að orðum í stafarugli, leysa alls kyns þrautir o.s.frv er hægt að flokka sem hugræna örvun eða þjálfun, þ.e.a.s svo lengi sem þrautirnar eru krefjandi.
Boðið er upp á hugræna þjálfun hjá iðjuþjálfa og notum við spjaldtölvur sem Seiglan á til þjálfunar sem fram fer hjá okkur. Gott er hins vegar að þátttakendur haldi áfram þjálfun heima amk einu sinni á dag og því gott ef til eru á heimilinu spjald – eða fartölva sem hægt er að setja forritið upp í.
Skráning er í hugræna þjálfun í síma 520 1080 eða með því að senda email á seiglan@alzheimer.is
Listinn er ekki tæmandi og fleiri hópar munu bætast við þegar fram líða stundir og þessir hópar mögulega breytast
Skráning og upplýsingar eru í síma 520 1080 og einnig er hægt senda tölvupóst á seiglan@alzheimer.is