Að greinast ung
Veikist fólk af heilabilun fyrir 65 ára aldur telst það snemmkomin heilabilun (young onset dementia). Allar gerðir heilabilunarsjúkdóma geta komið fram fyrir 65 ára aldur; til dæmis alzheimer, lewy body heilabilun, æðabilun, framheilabilun, blönduð heilabilun, heilabilun vegna áfengisneyslu og heilabilun vegna höfuðáverka. Ástæða þess að snemmkomin heilabilun er skilgreind sem sérstök tegund heilabilunar er hve ólíkar þarfir sá hópur getur haft miðað við þá sem greinast seinna á ævinni.
Algengt er að fólk sé fyrst greint með þunglyndi, kvíða eða streitueinkenni.
Hjá fólki með Alzheimer er minnistap yfirleitt fyrsta einkenni sem tekið er eftir en eftir því sem fólk er yngra eru önnur einkenni meira áberandi, til að mynda málstol, verkstol, skert ratvísi, dómgreindarskerðing og innsæisleysi.
Seiglan er úrræði fyrir fólk sem komið er með greiningu á heilabilunarsjúkdómi sem er á stigi vægrar vitrænnar skerðingar. Yngra fólk sem enn er á vinnumarkaðnum eða er nýlega hætt að vinna eru í forgangi í þjónustu þar.
