Fræðsla

Heilabilun

Eftir greiningu

Eftir greiningu

Á byrjunarstigi sjúkdómsins er alltaf erfitt að átta sig á hvaða þýðingu heilabilunargreiningin hefur. Það getur reynst erfitt að horfast í augu við sjúkdóminn og þær breytingar sem fylgja nýjum aðstæðum. Jafnvel þó fólk hafi verið undir það búið að hugsanlega væri um heilabilun að ræða, getur greiningin verið áfall.

Alzheimersamtökin bjóða upp á ráðgjöf fyrir einstaklinga með heilabilun og aðstandendur á staðnum, í fjarviðtali eða í síma. Hægt er að panta tíma í ráðgjöf í síma 520 1082 eða senda póst á radgjafi@alzheimer.is. Ráðgjöfin er öllum að kostnaðarlausu. Ráðgjafasíminn er opinn mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00-15:00 og föstudaga kl. 9:00-12:00.

Að tala opið um sjúkdóminn auðveldar fjölskyldumeðlimum og vinum að bjóða fram aðstoð sína. Margar fjölskyldur þurfa að takast á við heilabilunarsjúkdóm. Að eiga samskipti við aðra sem eru í sömu aðstæðum og maður sjálfur getur verið mikil styrkur til að takast á við daglegt líf með heilabilun.

Fylgstu með dagskrá Alzheimersamtakanna sem er fjölbreytt og styðjandi.