Alzheimersamtökin heimsækja Snæfellsnes
20. ágúst 2025
Við í Alzheimersamtökunum höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti.
Snæfellsnes
Nú er förinni heitið á Snæfellsnesið þar sem við höldum þrjú fræðsluerindi sem eru öllum opin. Eitt í Snæfellsbæ, annað á Grundarfirði og það þriðja í Stykkishólmi.
Heilabilun og samskipti
Þeir sem mæta öðlast skilning á heilabilun og hvernig megi bregðast við breyttum aðstæðum. Þá verður farið yfir leiðir til að auðvelda samskipti og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir reifaðar.
Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er annars að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.
Hverjir
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.
Laufey Jónsdóttir, tengiráðgjafi Gott að eldast verkefnisins á Vesturlandi verður einnig með stutt erindi.
Fyrir hverja
Fyrirlestrarnir eru opnir öllum áhugasömum og aðgangur ókeypis.
Mynd: Jessa Lundquist