Fræðsluerindi í Styk...

Fræðsluerindi í Stykkishólmi

Við í Alzheimersamtökunum höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er nefnilega að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.

Nú er förinni heitið á Snæfellsnesið þar sem við höldum m.a. opið fræðsluerindi í Stykkishólmi.

Hvenær og hvar

Miðvikudaginn 27. ágúst kl. 17:00 í Höfðaborg, Skólastíg 14

Hvað

Starf Alzheimersamtakanna verður kynnt og fjallað um heilabilun og samskipti.

Þeir sem mæta öðlast skilning á heilabilun og hvernig megi bregðast við breyttum aðstæðum. Þá verður farið yfir leiðir til að auðvelda samskipti og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir reifaðar.

Hverjir

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.
Laufey Jónsdóttir, tengiráðgjafi Gott að eldast verkefnisins á Vesturlandi verður einnig með stutt erindi.

Fyrir hverja

Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.

Aðgangur ókeypis.


Fræðsluerindi í Stykkishólmi

27. ágúst 2025

kl 17:00 - 18:30

Höfðaborg

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?