Samtökin

Starfsemi

Fríðusjóður

Fríðusjóður

Fríðusjóður er styrktarsjóður í eigu Alzheimersamtakanna sem stofnaður var árið 2026. Stofnfé sjóðsins er fjármunir sem fengust við sölu fasteignar að Austurbrún 31 í Reykjavík. Fasteignin var gjöf til Alzheimersamtakanna frá Pétri Símonarsyni í minningu eiginkonu hans Fríðu Ólafsdóttur sem glímdi við heilabilun.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til verkefna sem stuðla að bættri þjónustu við einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra og/eða aukinnar þekkingar á heilabilun í samfélaginu.

Hér má nálgast reglur Fríðusjóðs (Uppfært í apríl 2026)