Bókaútgáfa í Drafnarhúsi
8. september 2025
Í Drafnarhúsi í Hafnarfirði er rekin sérhæfð dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun. Þar er í boði fjölbreytt dagskrá til að styrkja bæði líkamlega og vitsmunalega hæfni þeirra sem þjónustuna sækja.
Á dögunum gáfu þau út fallega og eigulega bók sem kallast Bjart í álfasteinum. Í henni má finna vísur og myndverk sem vísnahópur Drafnarhúss hefur ort í sameiningu, og hins vegar málverk, unnin með akrýl- og vatnslitum, sem þátttakendur í myndlistarsmiðju Drafnarhúss hafa málað.
Bókin er frábær gjöf og kostar 3.500 kr.