Fjólublár bekkur á Húsavík
20. maí 2025
Víða um land má sjá fjólubláa bekki en tilgangur þeirra er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu.
Nýjasta bekkurinn er í Norðurþingi, nánar tiltekið á Stangabakkanum á Húsavík 💜
Bekkjaganga
Árið 2024 var fyrsta bekkjagangan haldin og það í Hafnarfirði. Ætlunin er að halda hana árlega og vonandi sem víðast um landið. Næsta ganga verður laugardaginn 24. maí næstkomandi bæði í Hafnarfirði og á Höfn.
Setja upp bekk
Ef þitt bæjarfélag hefur áhuga á að setja upp bekk þá má endilega hafa samband við okkur í síma 533 1088 eða senda okkur tölvupóst á alzheimer@alzheimer.is