40 ára afmælisbekkja...

40 ára afmælisbekkjaganga

Eftir vel heppnaða bekkjargöngu í fyrra endurtökum við leikinn og hittumst laugardaginn 24. maí næstkomandi við fjólubláa bekkinn við Sundhöllina í Hafnarfirði. Í þetta sinn einnig í afmælisskapi þar sem gangan er hluti af 40 ára afmælisfögnuði okkar þetta árið.

Tilgangur göngunnar er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu. Þá er þetta jafnframt liður í því að stuðla að líkamlegri og félagslegri virkni sem eru mikilvægir þættir almennrar heilsu.

Hvar, hvenær og hvernig

Gengið verður frá fjólubláa bekknum við Sundhöllina í Hafnarfirði að Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði þar sem skrifstofa Alzheimersamtakanna er til húsa. Þar verða léttar veitingar í boði eftir gönguna. Við hvetjum öll sem telja sig ráða við um 30 mínútna göngu á sínum hraða (um 2 km) til þess að koma og taka þátt í göngunni með okkur.

Landsbyggðin

Á Höfn verður bekkjarganga frá Steinagarðinum kl. 10:00, þar stendur þeirra fjólublái bekkur.

40 ára afmælisbekkjaganga

24. maí 2025

kl 13:00

Fjólublái bekkurinn við Sundhöll Hafnarfjarðar

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?