Styrkur - gleði - sl...

Styrkur - gleði - slökun

Virk hreyfing – Jafnvægi – Slökun – Næring - Félagsskapur

Námskeið þar sem markmiðið er að viðhalda virkni, vellíðan og efla hreyfifærni. Styrktar- og jafnvægisæfingar fyrir allan líkamann sem styrking fyrir andlega og félagslega heilsu.

Þessir einföldu þættir skipta sköpum fyrir fólk á byrjunarstigi heilabilunar.

Dagleg rútína sem nærir bæði líkama og huga, styður sjálfstæði og vellíðan ásamt því að hægja á framgangi einkenna sjúkdómsins.

Fyrir hverja

Fólk á biðlista eftir þjónustu í Seigluna

Hvar

Í Lífsgæðasetri St.jó, Suðurgötu 41, 3.hæð (Seiglunni), 220 Hafnarfirði

Hvenær

Mánudagar og miðvikudagar kl: 15:20 - 16:30
frá 12. janúar - 11. febrúar

Alls tíu skipti.


Nánar um námskeiðið

  • Þægileg og góð upphitun í byrjun hvers tíma og svo fjölbreyttar og skemmtilegar styrktaræfingar með lóðum, teygjum, böndum og jafnvægisæfingar þar sem við notumst við stóla svo allir geta tekið þátt.
  • Jóga nidra slökun í lok tímans sem er með betri leiðum til að ná fullkominni slökun og endurnærir bæði líkama og sál. Leiðbeinandi leiðir hópinn í gegnum slökunina.
  • Dýnur eru í sal en gott er að hafa með sér létt teppi og púða undir höfuð þegar farið er í liggjandi slökun.
  • Nauðsynlegt er að vera í léttum og þægilegum fatnaði og íþróttaskóm og gott er að hafa vatnsbrúsa við höndina ásamt litlu handklæði.

Verð

32.000 kr. (Ath. 10 skipti í stað 8 áður)

Greiða þarf fyrir námskeiðið áður en það byrjar og fæst ekki endurgreitt eftir að það hefst.

Skráning

Skráning og fyrirspurnir á gudrun@alzheimer.is

Styrkur - gleði - slökun

12. janúar 2026 - 11. febrúar 2026

kl 15:20 - 16:30

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?