Stuðningshópur fyrir...

Stuðningshópur fyrir aðstandendur á Akureyri

Stuðningshópur fyrir aðstandendur fólks með heilabilun.

Aðstandendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en eiga það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili. Hóparnir byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu.

Engin skráning og öll velkomin.

Stuðningshópur fyrir aðstandendur á Akureyri

9. september 2025

kl 17:00 -18:30

Salka félagsmiðstöð

Víðilundi

Umsjón með stuðningshópnum hafa Björg Jónína og Olga Ásrún, Alzheimertenglar á Akureyri.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?