Munnheilsa og heilabilun

Munnheilsa og heilabilun

Góð munnheilsa er ákaflega mikilvæg en munnhirða og tannburstun getur orðið krefjandi fyrir einstaklinga með heilabilun. Helga Pétursdóttir tannlæknir kemur til okkar og verður með erindi þessu tengt.

Helga starfar m.a. við tannlæknisþjónusta á hjúkrunarheimilum sem er sérhæfð, flytjanleg tannlæknisþjónusta sem er sett upp beint í herbergjum sjúklinga á hjúkrunarheimilum. Þjónustan er sérstaklega ætluð einstaklingum sem ekki geta sótt hefðbundnar tannlæknastofur vegna andlegra eða líkamlegra heilsuskerðinga.

Í erindi verður fjallað um:

- Mikilvægi góðrar munnheilsu.

- Að hjálpa öðrum að bursta

- Tannburstun og heilabilun

- Vörur fyrir munnhirðu – sérstaklega hjálpartæki

Fyrir hverja
Erindið er öllum opið. Við hvetjum sérstaklega aðstandendur og fagfólk til að mæta.

Fyrirlesari
Helga Pétursdóttir tannlæknir. Hún útskrifaðist árið 2006 frá tannlæknadeild HÍ en hefur bæði starfað hérlendis sem og í Svíþjóð.

Munnheilsa og heilabilun

18. ágúst 2026

kl 17:00 - 18:30