List & líðan
Hvernig geta skapandi vinnubrögð og myndlist stuðlað að félagslegri þátttöku og bætt líðan einstaklinga með heilabilun?
Í þessum fyrirlestri fjallar Unnur Mjöll, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Hafnarborg, um hvernig einföld og skapandi verkefni geta verið hluti af daglegu lífi fólks, í þeim tilgangi að auka lífsgæði og vellíðan. Þá segir hún frá þróunarverkefni sem hún hefur verið að vinna að, með nálgun listmeðferðar, þar sem rýnt er í það hvort myndlist geti nýst sem tæki til að styðja við einstaklinga á krefjandi tímabilum lífsins. Þar leggur hún sérstaka áherslu á samtöl og sköpun.
Í fyrirlestrinum kemur hún með ýmsar hugmyndir sem geta nýst fólki til að eiga gæðastundir með einstaklingum með heilabilun.
Unnur Mjöll S. Leifsdóttir er verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Hún er myndlistarkona, safnfræðslukennari og meistaranemi í listmeðferðarfræði við OsloMet háskólann í Osló. Hún lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands (LHÍ) og MA-gráðu frá School of Visual Arts í New York, auk kennsluréttinda.
Í starfi sínu hjá Hafnarborg vinnur Unnur Mjöll að þróun fræðslu- og miðlunarverkefna með það að markmiði að gera listina aðgengilega og merkingarbæra fyrir fjölbreyttan hóp gesta. Hún hefur meðal annars leitt safnfræðslu, listasmiðjur og samtöl milli listafólks og almennings.
10. febrúar 2026
kl 17:00 - 18:00
