Lífið með heilabilun...

Lífið með heilabilun – hagnýt ráð fyrir daglegt líf

Að fá greiningu á heilabilun vekur oft upp margar spurningar. Hver eru næstu skref? Hvað er mikilvægt að hafa í huga strax í upphafi? Hvernig er best að undirbúa sig fyrir komandi tíma?

Í þessari fræðslu verður farið yfir hagnýt atriði sem skipta máli í daglegu lífi eftir greiningu. Rætt verður um næstu skref, hvað gott er að leggja áherslu á og hvaða praktísku mál er mikilvægt að setja í farveg snemma, svo sem rafræn skilríki og umboð. Þá verður sjónum beint að því hvað einstaklingur með heilabilun getur sjálfur haft í huga við nýjar aðstæður og hvernig aðstandendur geta veitt stuðning á uppbyggilegan og styrkjandi hátt.

Einnig verður fjallað sérstaklega um hlutverk og líðan aðstandenda. Hvað skiptir máli þegar ástvinur fær greiningu og hvernig hægt er að hlúa að bæði tengslum og eigin velferð á sama tíma.

Fyrirlesari er Ásta Kristín, félagsráðgjafi hjá Alzheimersamtökunum. Hún hefur starfað sem félagsráðgjafi í 14 ár og í gegnum tíðina hitt fjölda einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra. Í starfi sínu hefur hún greint rauðan þráð í spurningum og áskorunum fólks. Í þessari fræðslu dregur hún saman þau atriði sem reynslan sýnir að skipta mestu máli.

Lífið með heilabilun – hagnýt ráð fyrir daglegt líf

10. mars 2026

kl 17:00 - 18:00

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?