Fríðuhús 25 ára - opið hús
Fríðuhús fagnar 25 ára afmæli um þessar mundir. Að því tilefni verður opið hús laugardaginn 6. júní næstkomandi á milli kl. 13-16.
- Bjarni Hall mætir með gítarinn
- Hjónin Birna og Kristján spila og syngja
- Léttar veitingar
Fríðuhús er staðsett í Logafold 56. Bílastæði við húsið er af skornum skammti og því þarf að leggja bílum á bílastæði við Grafarvogskirkju. Þaðan verða sætaferðir til og frá Fríðuhúsi á korters fresti frá kl. 13, svo 13.15 o.s.frv.
Öll velkomin.
6. júní 2026
kl 13:00 - 16:00
