Fræðsla á Höfn í Hor...

Fræðsla á Höfn í Hornafirði

Við höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er nefnilega að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.

Nú er förinni heitið til Hafnar í Hornafirði þar sem við höldum m.a. opið fræðsluerindi í Nýheimum

Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Þá er umræða um heilabilun einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.

⏰HVENÆR

Þri. 14. apríl kl. 17:00

🏠HVAR

Nýheimar

🗣HVERJIR

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.

👥FYRIR HVERJA

Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.

Fræðsla á Höfn í Hornafirði

14. apríl 2026

kl 17:00 - 18:30

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?