Fræðsla í Hveragerði
Við höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er nefnilega að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.
Nú er förinni heitið Hveragerði þar sem við höldum m.a. opið fræðsluerindi hjá Félagi eldri borgara í bænum.
Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Þá er umræða um heilabilun einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.
⏰HVENÆR
Mið. 25. mars kl. 15:00
🏠HVAR
Húsnæði félags eldri borgara, Breiðamörk 25b, 2. hæð
🗣HVERJIR
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.
👥FYRIR HVERJA
Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.
25. mars 2026
kl 15:00 - 16:30
