Fræðsla á Hvammstanga
Við höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er nefnilega að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.
Nú verðum tengd í gegnum fjarfund við Hvammstanga og höldum opið fræðsluerindi hjá Félagi eldri borgara í bænum.
Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Þá er umræða um heilabilun einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.
⏰HVENÆR
Mán. 9. mars kl. 15:00
🏠HVAR
Samfélagsmiðstöðin í Félagsheimilinu á Hvammstanga, Klapparstíg 4
🗣HVERJIR
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri samtakanna heldur fræðsluerindið. Á staðnum verða nýir Alzheimertenglar í Húnaþingi vestra þær Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Sigurbjörg Þorsteinsdóttir.
👥FYRIR HVERJA
Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.
9. mars 2026
kl 15:00 - 16:00
