EKKO á vinnustöðum – skyldur, viðbrögð og áskoranir í þjónustu við fólk með heilabilun
Hvernig á að bregðast við þegar upp koma mál sem varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi á vinnustað?
Í þessari fræðslu er fjallað um EKKO – einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi – og þau lagalegu og faglegu viðbrögð sem atvinnurekendum og starfsfólki ber að tryggja samkvæmt reglugerð nr. 1009/2015. Þá leitast Unnur Ásta við að svara spurningum sem kunna að vakna sérstaklega í tengslum við umönnun og samskipti við einstaklinga með heilabilun.
Farið verður yfir:
- Lögbundnar skyldur atvinnurekenda og starfsfólks
- Hvernig rétt er að taka á móti kvörtunum og bregðast við
- Sérstakar áskoranir sem geta komið upp í umönnunar- og þjónustustarfi
FYRIRLESARI
Unnur Ásta Bergsteinsdóttir, lögmaður sem starfar hjá MAGNA Lögmönnum og hefur m.a. sérhæft sig í vinnurétti og vinnuvernd. Hún hefur bæði aðstoðað vinnustaði og einstaklinga við úrlausn og viðbrögð við EKKO málum. Auk þess hefur hún nýlega lokið máli í sáttamiðlun sem getur m.a. gagnast á sviði EKKO mála.
FYRIR HVERJA
Öll velkomin. Engin skráning nauðsynleg.
HVENÆR
Mánudaginn 11. maí kl. 17:00
HVAR
Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði samtakanna í St. Jó í Hafnarfirði á 3. hæð. Það eru bílastæði báðu megin við húsið – fleiri Hringbrautarmegin.
UPPTAKA
Fyrirlesturinn verður tekinn upp og settur á vefinn okkar daginn eftir.
11. maí 2026
kl 17:00 - 18:00
