Bekkjaganga víðsvega...

Bekkjaganga víðsvegar um landið

Þriðja árið í röð höldum við svokallaða bekkjagöngu og að þessu sinni verður gengið á nokkrum stöðum á landinu.

Tilgangur göngunnar er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu. Þá er þetta jafnframt liður í því að stuðla að líkamlegri og félagslegri virkni sem eru mikilvægir þættir almennrar heilsu.

Hvernig, hvenær og hvar

Við hvetjum öll sem telja sig ráða við um 30 mínútna göngu á sínum hraða (um 2 km) til þess að koma og taka þátt í göngunni með okkur. Allar göngur hefjast kl 13:00 nema annað sé tekið fram.

💜 Akranes
Hisst við innganginn á Höfða og gengið að fjólubláa bekknum.

💜 Árborg
Gengið frá fjólubláa bekknum sem stendur hjá Gleraugna Gallerí á Eyravegi 7.

💜 Hafnarfjörður
Gengið verður frá fjólubláa bekknum við Sundhöllina í Hafnarfirði að Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði þar sem skrifstofa Alzheimersamtakanna er til húsa. Þar verða léttar veitingar í boði eftir gönguna.

💜 Húsavík
Gengið frá fjólubláa bekknum við Mararbraut.

💜 Hveragerði - kl 10:30
Gengið frá fjólubláa bekknum á Ási að næsta fjólubláa bekk bæjarins. Þeir sem vilja ganga áfram til Almars bakara.

💜 Höfn í Hornafirði - kl 10:00
Gengið frá Steinagarðinum við Sandbakka.

💜 Akureyri - fimmtudag 4. júní kl 17:00
Gengið frá bekknum á Drottningarbraut og þaðan haldið í pizzu í Birtu.


Stefnt er að því að ganga á enn fleiri stöðum. Við kynnum þá um leið og það liggur fyrir.

Bekkjaganga víðsvegar um landið

6. júní 2026

kl 13:00 - 14:30

Fjólublái bekkurinn við Sundhöll Hafnarfjarðar

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?