Alzheimerkaffi í Hæð...

Alzheimerkaffi í Hæðargarði 31

Alzheimerkaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Tilgangurinn er að gefa fólki tækifæri til að koma saman, þar sem þeirra þörfum er mætt og opna umræðu um áskoranir fólks með heilabilun.

Alzheimerkaffi í Hæðargarði 31

8. janúar 2026

kl 17:00 - 18:30

Hæðargarður 31

108 Reykjavík

DAGSKRÁ

Gunna Stella kemur og fjallar um bókina sína Amma nammigrís sem segir frá ömmu sem hoppar á trampólíni, gerir kollhnísa og getur borðað ótrúlegt magn af nammi. Það sem er hinsvegar farið að gerast hjá ömmu í dag er að hún farin að gleyma. Amma er með Alzheimer.

Í lokin stjórnar Sveinn Arnar Sæmundsson samsöng og spilar undir á píanó.

TILGANGUR

Gefa fólki tækifæri til að koma saman, þar sem þeirra þörfum er mætt og opna umræðu um áskoranir fólks með heilabilun.

FYRIR HVERJA

Alzheimerkaffið er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Samkoman er tilvalinn vettvangur til að hittast, hlýða á stutt erindi/skemmtun, spjalla og gæða sér á kaffi og góðum veitingum.

AÐRAR UPPLÝSINGAR

Engin þörf á að skrá sig - bara að mæta! Kaffigjald er 500 kr. en það eru Sóroptimistar sem sjá um kaffi og veitingar.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?