Aðstandendasamvera á Selfossi
Aðstandendur fólks með Alzheimer eða aðra heilabilun eiga það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða hjúkrunarheimili.
Markmið samverunnar er að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annara í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu. Engin skipulögð dagskrá bara mæta og spjalla. Rödd ykkar skiptir máli.
Makar og nánir ættingjar hjartanlega velkomnir.
Hittumst alltaf fyrsta mánudag í mánuði.
2. mars 2026
kl 16:30 - 18:00
Vinaminni
Valholti 19
