Aðstandendasamvera á...

Aðstandendasamvera á Ísafirði

Samvera sem er einungis ætluð aðstandendum.

Aðstandendur fólks með heilabilun eiga það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða hjúkrunarheimili. Markmið samverunnar er að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annara í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu.

Engin skipulögð dagskrá bara mæta og spjalla. Rödd ykkar skiptir máli.
Svanlaug Alzheimertengill á Ísafirði verður á staðnum.

Soroptimistaklúbbur Ísafjarðar sér um kaffiveitingar. Kaffigjald er 500 krónur.

Makar og nánir ættingjar hjartanlega velkomnir. 

Aðstandendasamvera á Ísafirði

18. mars 2026

kl 16:30 - 18:00

Félagsmiðstöð eldri borgara á Hlíf

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?