Aðalfundur 2026
Aðalfundur Alzheimersamtakanna á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 12. maí 2026 kl. 17.00 í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði, Suðurgötu 41 (3. hæð).
Þátttökurétt á fundinum hafa félagsmenn sem greitt hafa árgjald ársins 2025.
ATH - Stjórn mun leggja fram breytingartillögu á 1. gr. laga um nafn félagsins, sjá hér.
Dagskrá aðalfundar:
- Setning fundar.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar.
- Kynning á starfsemi samtakanna á árinu.
- Ársreikningar félagsins lagðir fram, skýrðir og afgreiddir.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Ákvörðun um árgjald.
- Önnur mál.
12. maí 2026
kl 17:00 - 18:00
