40 ára afmælisráðste...

40 ára afmælisráðstefna

Þann 20. september næstkomandi verður árleg ráðstefna Alzheimersamtakanna haldin á Hótel Nordica. Að þessu sinni markar hún tímamót, því við fögnum jafnframt 40 ára afmæli okkar. Ráðstefnan er eins og endranær haldin í tengslum við alþjóðlegan dag Alzheimers og við erum búin að setja saman vandaða dagskrá.

BEINT STREYMI HÉR

Dagskrá

  • 13:00 Fundarstjóri setur ráðstefnuna
  • 13:10 Guðlaugur Eyjólfsson frk.stj. Alzheimersamtakanna
  • 13:30 Ávarp - Björn Skúlason verndari Alzheimersamtakanna
  • 13:40 Ávarp - Alma Möller heilbrigðisráðherra
  • 13:50 Jón Snædal öldrunarlæknir - Saga heilabilunar á Íslandi
  • 14:15 Skemmtiatriði
  • 14:30 Kaffihlé
  • 15:00 Seiglukórinn
  • 15:20 Eva Þengilsdóttir frk.stj. ÖBÍ - Mikilvægi félagasamtaka
  • 15:30 Steinunn Þórðardóttir formaður læknafélagsins - Áskoranir framtíðarinnar
  • 15:55 Lokaorð fundarstjóra
  • 16:00 Léttar veitingar og afmælisskál
  • 17:00 Dagskrá lýkur

Öll velkomin - engin skráning

Ráðstefnan hefur undanfarin ár verið vel sótt af einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum sem láta sig málefnið varða.

Öll velkomin. Engin skráning, bara mæta.

Beint streymi

Ráðstefnan verður send út í beinu streymi HÉR

40 ára afmælisráðstefna

20. september 2025

kl 13:00 - 17:00

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?