Aðgát skal höfð

Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum sem heimsækja heimasíðu samtakanna að nú er hægt að mæla prótein í blóði sem getur sagt til um hvort Alzheimer sjúkdómur er farinn að búa um sig. Almennt er mælt með mælingu þess þegar einstaklingur er komin með einkenni svo sem minnisskerðingu og það er þörf á að vita af hverju.

Það hefur hins vegar færst í vöxt, a.m.k. erlendis að einstaklingar án einkenna biðji um eða fari sjálfir í slíka prufu. Þetta var til umfjöllunar í New York Times og sagt m.a. frá Beth sem vegna fjölskyldusögu um Alzheimer sjúkdóm fékk mælt próteinið fosfó-tau 217 í blóði. Það reyndist hækkað og  sýndi þar með að hún væri líklega komin með einkenni sjúkdómsins. Gerðar voru frekari rannsóknir sem allar komu eðlilega út. Hún veit í dag ekkert hvað framtíðin muni bera í skauti sér því rannsóknin er alls ekki óyggjandi og margir sem hafa hækkuð gildi munu aldrei fá sjúkdóminn (kallast falskt jákvætt). Þetta er m.a. niðustaða rannsóknar sem birtist í tímariti Bandarísku læknasamtakanna (JAMA) en hún sýndi að tæplega 40% fundu fyrir lakara minni innan 5 ára frá rannsókninni og um tvöfalt fleiri eftir 10 ár. Fjórðungur var þó án allra einkenna áratug eftir að niðurstaða sýndi klárlega hækkuð gildi.

Niðurstaða sem þessi hjá einkennalausum einstaklingum hefur ýmis áhrif. Sumir verða miður sín og vita ekki hvað til bragðs eigi að taka. Aðrir breyta um lífsstíl og undirbúa það sem í vændum er sem kannski kemur aldrei. Þetta hefur því í raun áhrif á alla sem fara í þessa rannsókn.

Vandinn er sá að m.a. í Bandaríkjunum geta einstaklingar keypt þessa rannsókn beint af rannsóknarstofum. Aðrir sannfæra lækni sinn um að panta rannsóknina. Það er hins vegar samdóma ráðlegging þeirra sem best vita að einstaklingar sem eru með eðlilega vitræna getu (þar með talið með eðlilegt minni) láti ekki skoða þetta. Þar sem rannsóknarþjónusta beint til neytenda færist í vöxt hér á landi er rétt að vara við því að láta skoða prótein í blóði sem tengjast Alzheimer sjúkdómnum.