Sjúkdómsgreining í Alzheimer sjúkdómi - að stytta sér leið

Nýlega hefur fyrirtækið Intuens sett upp rannsóknaraðstöðu í Reykjavík fyrir segulómun og býður fólki að koma í heilskimun þar sem tækið skoðar líkamann frá höfði ofan í tær. Á heimasíðunni er langur listi yfir sjúkdóma og sjúkdómsástand sem segulómun getur greint og er það flokkað eftir líffærum. Hér verður ekki fjallað um annað en það sem rannsóknin getur sagt varðandi greiningu á Alzheimer sjúkdómi en fyrst koma þó nokkur almenn orð um þjónustu af þessu tagi. Samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins virðist vera hægt að panta tíma beint án tilvísunar frá lækni. Þetta er því milliliðalaus þjónusta (á ensku: direct to consumer service). Slík þjónusta hefur verið veitt erlendis varðandi ýmsar rannsóknir en lítið hefur verið um slíkt hér á landi. Kosturinn er gott aðgengi og að bið eftir tiltekinni rannsókn er almennt styttri. Það sem skiptir hins vegar mestu máli er hvort rannsóknin hjálpi til við sjúkdómsgreiningar en í því felst óvissa. Þegar læknir fær svar úr rannsókn sem hann hefur beðið um þarf hann að setja niðurstöðuna í samhengi við aðrar upplýsingar og ákveða hvort eitthvað þurfi að gera og byggir þá á svarinu frá röntgenlækni. Í beiðni læknisins um rannsóknina kemur venjulega fram af hverju er verið að biðja um rannsóknina og það hjálpar röntgenlækni við að skoða tiltekin atriði sérstaklega. Hvorugt á við í þessu tilviki; það liggur ekki fyrir beiðni og svar berst ekki til læknis viðkomandi heldur til hans sjálfs.  Sá röntgenlæknir sem les úr myndunum veit ekkert um áhyggjur viðkomandi og getur því ekki skoðað myndirnar með hliðsjón af sérstökum upplýsingum. Samkvæmt heimasíðunni er boðið er upp á viðtal við sérfræðing í kjölfar rannsóknar sem þó þekkir viðkomandi ekkert og getur því ekki sett niðurstöðurnar í samhengi.  Það er engin tenging við áframhaldið og svo virðist sem svör séu ekki send heimilislækni heldur fái viðkomandi einstaklingur niðurstöður á rafrænu formi. Hana er hægt að fara með áfram en það er alfarið í höndum einstaklingsins.  Það er því ekki víst að það verði neinn tímasparnaður. Þessi rannsókn er ekki niðurgreidd og kostar því mun meira en sambærileg rannsókn.

 

Í viðtali við Viðskiptablaðið var nefnt að rannsóknin gæti m.a. greint Alzheimer sjúkdóm. Sjúkdóminn er þó ekki að finna á listanum á heimasíðu fyrirtækisins og því ósamræmi í upplýsingum. Segulómun er vissulega mikilvæg í rannsókn á sjúkdómnum en sem greiningartæki er rannsóknin ónákvæm ein út af fyrir sig.  Niðurstöður þarf svo ætíð að setja í samhengi við aðrar upplýsingar. Á minnismóttöku Landakots er lögð áhersla á að úrlestur úr segulómun af heila sé gerð af hálfu röntgenlæknis með mikla reynslu á því sviði og á það einkum við þegar rúmmálsathugun er gerð á vissum svæðum heilans. Þær myndir sem hugsanlega verða teknar og metnar hjá Intuens verður því að skoða að nýju og þá er tímasparnaður farinn.

Það er ekki löng bið eftir að komast í segulómun á Íslandi, nokkrir dagar eða fáeinar vikur. Það er því vandséð að nokkur tímasparnaður verði af því að fara í myndatöku hjá umræddu fyrirtæki en auðvelt að sjá að það geti orðið frestun. Rannsóknin er dýrari og það er einnig óvissa með niðurstöður. Það er því ekki hægt að mæla með því að fólk noti þessa þjónustu við greiningu á Alzheimer sjúkdómi.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?