Vel sótt fræðsla á Hvammstanga
11. mars 2026
Í vikunni héldum við fræðsluerindi á Hvammstanga í samstarfi við Félag eldri borgara (FEB) á staðnum þar sem fjallað var um starf samtakanna, heilabilun og góð samskipti.
Erindið var haldið í Samfélagsmiðstöðinni og var góð mæting. Stór hluti gesta voru félagar í FEB en þar voru einnig aðstandendur og heilbrigðisstarfsfólk.
Auka þekkingu og skilning
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna, sá um fræðsluna í gegnum fjarfundarbúnað. Markmiðið var að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.
Í erindinu hvatti Thelma meðal annars fólk til að vera opið um sjúkdóminn, þar sem það getur dregið úr einangrun og kvíða. Þá er aukin umræða um heilabilun einnig mikilvæg til að minnka fordóma í samfélaginu.
Nýir Alzheimertenglar
Erindið var haldið að frumkvæði Elísabetar Eirar Steinbjörnsdóttur og Sigurbjargar Þorsteinsdóttur, sem tóku nýverið að sér hlutverk Alzheimertengla í Húnaþingi.
Þær voru báðar á staðnum og stýrðu fundinum. Við erum afar þakklát fyrir að hafa fengið þær í hóp mikilvægra Alzheimertengla sem starfa víðs vegar um landið.
Takk fyrir okkur
Við þökkum FEB fyrir boðið og einnig öllum þeim sem komu og hlýddu á erindið. Góðar umræður sköpuðust í lok fundar.
Ef áhugi er á að fá fræðsluerindi frá Alzheimersamtökunum er velkomið að hafa samband á netfangið alzheimer@alzheimer.is.
