Tæknilausnir sem styðja fólk með heilabilun

15. október 2025

Svanborg Guðmundsdóttir (Svana), iðjuþjálfi á Landakoti, hélt nýlega fyrirlestur hjá okkur þar sem hún fjallaði um hvort og hvernig tæknilausnir geti nýst fólki með heilabilun. Hún fór yfir hvaða lausnir henta best og hvernig hægt er að velja þær í samræmi við þarfir og getu notandans.

Mismunandi þarfir notenda

Hún fjallaði um algengan iðjuvanda, svo sem dægurvillu, og hvaða úrræði geta reynst gagnleg. Þá benti hún á fjölbreyttar lausnir, allt frá einföldum hjálpartækjum til snjalllausna sem geta aukið bæði öryggi og sjálfstæði, en lagði áherslu á mikilvægi þess að velja eftir þörfum og getu notandans.

Þá kom hún einnig inn á nokkur siðferðileg álitamál og mikilvægi þess að byrja að nota tæknina sem fyrst – því fyrr sem henni er komið inn því lengur er hægt að nota hana.

Aðrar gagnlegar lausnir

Svana nefndi einnig ýmis hagnýt atriði sem geta auðveldað daglegt líf, svo sem litsterkur matardiskur, dökk klósettseta, snertilampi, einfalt skilti á hurð og mikilvægi þess að minnka óreiðu á borðum svo sem í kringum kaffivélina.

Góðar umræður og hrós til fyrirlesara

Það var fín mæting á fræðsluerindið og nokkuð um spurningar og vangaveltur. Þá var Svönu líka sérstaklega hrósað fyrir ákaflega upplýsandi erindi og að hún væri greinilega með djúpan skilning á stöðu fólks með heilabilun.

Upptaka fyrir þá sem misstu af

Við þökkum Svönu innilega fyrir fróðlegt og vel framsett erindi. Þeir sem komust ekki geta horft á upptökuna með því að smella á hlekkinn hér að neðan.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?