Styttist í Reykjavíkurmaraþon
5. ágúst 2026
Laugardaginn 22. ágúst fer Reykjavíkurmaraþonið fram og er enn hægt að skrá sig, safna áheitum og styðja við samtökin hér.
Þau sem ákveða að hlaupa í nafni samtakanna fá afhentan bol og buff á básnum okkar á Fit&Run í Laugardalshöll þegar hlauparar sækja hlaupagögnin sín. Við verðum þar frá kl. 14.00-20.00 fimmtudaginn 20. ágúst og föstudaginn 21. ágúst.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og takk fyrir stuðninginn 💜