Styrkur í stað afmælisgjafa
23. júní 2025
Hlynur Sigurðsson fagnaði 50 ára afmæli sínu nýverið með pompi og prakt. Hann ákvað að afþakka gjafir frá veislugestum og bað þá frekar um að styrkja Alzheimersamtökin. „Ég þarfnast einskis og vildi frekar láta gott af mér leiða,” sagði Hlynur þegar hann kom til okkar nýverið færandi hendi, en alls söfnuðust 250 þúsund krónur.
Samtökin standa Hlyni nærri, því Sigurður, faðir hans, er með heilabilun og var einn af þeim fyrstu sem sótti þjónustu í Seigluna.
Við erum ótrúlega þakklát fyrir þessa fallegu gjöf sem á eftir að nýtast vel í okkar mikilvæga starfi 💜
Myndatexti: Hlynur og Thelma, fræðslustjórinn okkar.