Óskað eftir umsóknum í Fríðusjóð

12. maí 2026

Fríðusjóður er styrktarsjóður í eigu Alzheimersamtakanna sem stofnaður var árið 2026. Stofnfé sjóðsins er fjármunir sem fengust við sölu fasteignar að Austurbrún 31 í Reykjavík. Fasteignin var gjöf til Alzheimersamtakanna frá Pétri Símonarsyni í minningu eiginkonu hans Fríðu Ólafsdóttur sem glímdi við heilabilun.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til verkefna sem stuðla að bættri þjónustu við einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra og/eða aukinnar þekkingar á heilabilun í samfélaginu.

Heildarupphæð allra úthlutaðra styrkja á árinu 2026 nemur allt að 5.000.000 kr. 

Fylla skal út umsóknareyðublað sem er aðgengilegt  - HÉR -

Umsókn sendist ásamt fylgigögnum á alzheimer@alzheimer.is merkt „Fríðusjóður – umsókn“.

Óháð valnefnd mun yfirfara allar umsóknir og velja þau verkefni sem hljóta styrk. Sé þörf á frekari fylgigögnum mun valnefnd óska eftir þeim.

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2026. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður öllum umsóknum svarað. 

Úthlutun styrkja mun fara fram mánudaginn 21. september 2026.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?