Stúkan Bjarni riddari styrkir Seigluna
12. maí 2026
Seiglan er afar þakklát fyrir þann hlýhug og stuðning sem hún hefur fengið frá Oddfellow stúkunni Bjarna riddara, en stúkan fagnar 50 ára afmæli á þessu ári.
Í tilefni af afmælinu veitti reglan Seiglunni rausnarlegan styrk að upphæð 1.500.000 króna sem verður nýttur til kaupa á upplýsingaskjá og húsgögnum til nota í starfseminni.
Styrkur sem þessi skiptir okkur miklu máli og hjálpar okkur að skapa hlýlegt, aðgengilegt og hvetjandi umhverfi fyrir fólk á fyrstu stigum heilabilunar og aðstandendur þeirra.
Við sendum þeim okkar bestu þakkir og innilegar hamingjuóskir með 50 ára afmælið.
Mynd: Harpa Björgvinsdóttir, forstöðukona Seiglunnar tekur við gjöfinni á afmælisfagnaði stúkunnar. Með henni á myndinni eru Helgi Kristján Gunnarsson, undirmeistari stúkunnar og Steingrímur P. Björnsson, formaður líknarsjóðs Bjarna riddara.