Ný Seigla mun opna 2027!

5. maí 2026

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Alzheimersamtökunum fjármagn til reksturs á nýrri Seiglu frá janúar 2027!

Í kjölfar ákvörðunar ráðherra hafa Alzheimersamtökin gert leigusamning við Kópavogsbæ um leigu á tveimur hæðum í Geðræktarhúsinu undir starfsemina.

Við hlökkum mikið til að opna nýtt þjónustuúrræði fyrir fólk á fyrstu stigum heilabilunar, starfsemin verður sambærileg Seiglunni sem við rekum í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði (gamli St. Jósefsspítali), það er viðeigandi þar sem Guðjón Samúelsson teiknaði bæði húsin og voru þau bæði tekin í notkun árið 1926.

Við erum í skýjunum með þessa ákvörðun og er undirbúningur kominn á fullt. Gert er ráð fyrir 17 plássum á árinu 2027 og svo 33 plássum á árinu 2028 sem er sambærilegt við núverandi starfsemi í Seiglunni. 

Í starfseminni í Geðræktarhúsinu verður líkt og í Seiglunni undanfarin ár lögð áhersla á að tryggja líkamlega, vitræna og félagslega virkni þjónustuþega, sem rannsóknir hafa sýnt fram á að geti hægt á framgangi sjúkdómsins, minnkað einkenni og aukið lífsgæði. 

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?