Norrænt samstarf

30. maí 2025

Á dögunum sóttu Alzheimersamtökin á Íslandi árlegan fund með systursamtökum sínum á Norðurlöndunum. Fundurinn í ár var haldinn í Helsinki í Finnlandi.

Á fundinum fengum við kynningu á starfi Alzheimersamtaka í Finnlandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Færeyjum. Einnig kynntum við starf okkar hér á Íslandi. Meðal þess sem rætt var á fundinum var fjármögnun, kynningarstarf, fjölmenning og skipulag verkefna.

Slíkt samstarf er okkur mikilvægt því vinna að hagsmunum einstaklinga með heilabilun og aðstandenda þeirra er mjög sambærileg á milli landa, sérstaklega á Norðurlöndum.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?