Fréttir

Minntust Gerðar

Minntust Gerðar

19. júní 2026

Undirbúningsnefnd og fyrsta stjórn Alzheimersamtakanna færðu samtökunum innrammaða mynd í minningu Gerðar Pálmadóttur, fyrsta formanns samtakanna. Viðstödd voru börn Gerðar þau Svana Gunnarsdóttir og Pálmi Þór Gunnarsson. Ragnheiður Ríkharðsdóttir núverandi stjórnarformaður samtakanna tók við myndinni fyrir hönd Alzheimersamtakanna.

Falleg gjöf til minningar um magnaða konu 💜

Á myndinni er eftirfarandi texti:

Gerður Pálmadóttir
1948-2025
Frumkvöðull og athafnarkona
Gerður var kjörin fyrsti formaður Alzheimersamtakanna árið 1985. Mynd þessi er gefin til minningar um óeigingjarnt starf Gerðar. Að gjöfinni standa undirbúningsnefnd og fyrsta stjórn Alzheimersamtakanna: Guðjón Brjánsson, Helga Einarsdóttir, Hrafn Magnússon og Þröstur Einarsson.