Talið er að hægt sé að hafa bein áhrif á um 40% áhættuþátta heilabilunar.
Með því að fylgja almennum ráðleggingum Landlæknis og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um heilbrigði og lífsstíl getum við haft áhrif á stóran hluta þessara áhættuþátta.
Að fylgja ráðleggingum um t.d. svefn, mataræði, hreyfingu, félagsleg tengsl og vitræna örvun getur verið forvörn gegn heilabilun, hægt á framgangi sjúkdómsins og minnkað einkenni.
Hér eru nokkrar einfaldar ráðleggingar:
Reyna að sofa nálægt 8 klst. á sólarhring Reyna að hafa reglu á svefninum. Fara að sofa og vakna á svipuðum tíma. Neyta fjölbreyttrar fæðu. Hugsa meira um að bæta inn í mataræðið næringarríkri fæðu frekar en að útiloka fæðutegundir. Dæmi: neyta meira af grænmeti og ávöxtum. Neyta mikið unnina matvæla í takmörkuðu magni. Drekka ekki áfengi og neyta ekki tóbaks Öll hreyfing er betri en engin hreyfing. Finna hreyfingu sem þú hefur gaman af. Dæmi: Ganga rösklega 20-30 mín á dag. Gera styrktaræfingar 2-3x í viku og viðhalda þannig vöðvamassa og beinþéttni. Að tilheyra skiptir máli og gott er að vera í reglulegum félagslegum tengslum við vini, kunningja og fjölskyldu. Örva hugann með einhverjum hætti eins og t.d. að spila á spil, leysa krossgátu, spila skák o.s.frv. Góð ráð varðandi lífsstíl
Ekki breyta of miklu í einu, horfðu til lengri tíma. Byrjaðu á því sem þér finnst auðveldast að breyta.