Lífið með heilabilun – hagnýt ráð í daglegu lífi
12. mars 2026
Að fá greiningu á heilabilun vekur oft upp margar spurningar. Hver eru næstu skref? Hvað er mikilvægt að hafa í huga strax í upphafi? Hvernig er best að undirbúa sig fyrir komandi tíma?
Þessum spurningum og enn fleirum svaraði Ásta Kristín, ráðgjafi Alzheimersamtakanna, í erindi sínu Lífið með heilabilun sem hún hélt í vikunni. Hún hefur í gegnum tíðina hitt fjölda einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra. Í starfi sínu hefur hún greint rauðan þráð í spurningum og áskorunum fólks og ákvað að draga þau saman í þessum fyrirlestri.
Hagnýt ráð og virkni
Hún hóf erindið á því að fara yfir nokkur hagnýt atriði, sem mikilvægt að setja í farveg snemma, svo sem rafræn skilríki og umboð. Þá fjallaði hún um hvað einstaklingur með heilabilun getur sjálfur haft í huga við nýjar aðstæður s.s. mikilvægi þess að segja frá greiningunni og halda áfram að gera það sem maður getur. Ásta Kristín talaði einnig um mikilvægi virkni, sem getur verið bæði félagsleg og líkamleg.
Hlutverk aðstandenda
Í erindinu var einnig sérstaklega fjallað um hlutverk og líðan aðstandenda. Hvað skiptir máli þegar ástvinur fær greiningu og hvernig hægt er að hlúa að bæði tengslum og eigin velferð á sama tíma.
Upptaka
Við þökkum Ástu Kristínu fyrir mikilvæga og áhugaverð fræðslu. Erindið hennar var tekið upp og og hvetjum við áhugasama til að horfa á upptökuna.